Ég hlakka svo til, Ég hlakka alltaf svo til....
Það verður jólaball hjá okkur á Klömbrum eftir hádegi föstudaginn 18. desember þegar allir eru búnir að fá sinn hádegislúr. Við höfum heyrt smá slúðursögu um það að Gluggagægir ætlar að kíkja á gluggana hjá okkur. Kannski kemur Hurðarskellir líka því að hann hefur heyrt af því að það eru einstaklegar margar hurðir á Klömbrum. Þórólfur sóttvarnalæknir boðaði víst jólasveinana á fund áður en þeir komu til byggða, svo að þeir eiga að kunna reglurnar um Covid-19. Spurning hvort Þvörusleikir og Askasleikir fara eftir reglum og standast freistinguna þetta árið?
En allavegna við erum mjög spennt! :)