Hrekkjavöku/búningadagur var í dag og börnin á Klömbrum skemmtu sér rosalega vel. Við höfðum danspartý með diskóljósum á vinafundi. Við vorum líka með litríkan dúk sem börnin höfðu gaman að fara undir og dansa. Myndir frá deginum eru komnar inn á myndasíðuna. Því miður urðu gæðin á myndunum af ballinu ekki góð því að stuðið í krökkunum var svo mikið. Diskóljósin í loftinu voru heldur ekki að gera góða hluti :)